
Er líða fer að jólum
Drungi í desember.
Dagskíman föl svo skelfing lítil er.
En myrkrið er svo magnað
og myrkrið er svo kalt.
Þá kvikna kertaljós
og kvikir fætur tifa á hal og drós.
Senn frelsara er fagnað
þá færist líf í allt.
Þótt úti öskri hríð
allt verður bjart og hlýtt.
Það er allsstaðar tónlist ylhýr og fín
sem ómar undurblítt.
Er líða fer að jólum
og hátíð fer í hönd
Glóandi í gluggunum
glöð ljósin víkja burtu skuggunum.
Allir gott nú gjöri.
En gleymi sút og sorg
Áður svo auð og köld
uppljómast borgin nú með bílafjöld.
Fótataki og fjöri
sem fyllir stræti og torg.
Þó margir finni ei frið
og fari við gæfuna á mis.
Þá lífgar samt upp og léttir þungt skap
líflegur ys og þys.
Er líða fer að jólum
og hátíð fer í hönd.
Writer/s: Omar Ragnarsson