
Hjarta mitt
Hjarta mitt þú veist að ég er æðin þín
og þú munt alltaf þarfnast mín
á meðan ævisólin skín.
Hjarta mitt þú veist að ég er hlífin þín
og þú mátt leita inn til mín
á meðan æskuljóminn dvín.
Ég hugsa um þig hvern morgunn
og ég hugsa um þig hvert kvöld.
Ég hugsa um þig þegar nóttin fellur á
og ég vona að þú verðir mér hjá.
Hjarta mitt þú veist að ég verð slóðin þín
og ég veit þú þarfnast mín
rétt eins og augu þurfa sýn.
Ég hugsa um þig hvern morgunn
og ég hugsa um þig hvert kvöld.
Ég hugsa um þig þegar nóttin fellur á
og ég vona að þú verðir mér ætíð hjá.
Ég hugsa um þig hvern morgunn
og ég hugsa um þig hvert kvöld.
Ég hugsa um þig þegar nóttin skellur á
og ég veit að þú verður mér ævilangt hjá.
Writer/s: Bragi Valdimar Skúlason