Kósíheit par exelans


Afsakaðu allan þennan reyk inni
Ég var bara að líta til með Bsteikinni
Hún er meir og mjúk
Hún er eins og hugur manns

Loksins ertu kominn hingað á minn fund
Finn svo gjörla þetta er töfrastund
Úti er vindur og fjúk
Kósíheit par exelans

Smakka sósuna því mér finnst hún í það þynnsta
Hún þarf korter enn í það allra minnsta
við setjumst að borðum – a-ha
Já, við setjumst og borðum – a-ha

Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? Þetta er yndislegt!
Jahá, en mest er þó gaman – a-ha
Að við skulum vera saman – a-ha

Góða veislu má ei skorta eftirrétt
Eitthvað sem er saðsamt, en um leið svo létt
Fá' ðér rúsínubrauð
nær algjörlega fitusnauð

Allir þurfa jú að passa línurnar
Viljum ekki enda eins og svín, er það?
Fokkitt skítt með það
Fáum okkur ögn meiri rjóma.

Viltu sérrítár? Eða kamparí í órans?
Æ, manstu vikuna, okkar í Flórens?
Er við drukkum það saman – a-ha
Æ, hvað það var nú gaman- a-ha

Smökkum sörurnar, mömmukökurnar
Makkarónurnar, eplabökurnar
Hvernig smakkast svo? Þetta er dásamlegt!
Jahá, en mest er þó gaman – a-ha
Að við skulum vera saman – ha-ha

Kaffið
Mmmm, og svo koníak með því

Meira laufabrauð? Eða marensfrauð?
Hvar er konfektið? Er það uppurið?
Hvernig smakkast svo? – Þetta er æðislegt!
Jahá, en mest er þó gaman – a-ha
Að við skulum vera saman – a-ha

Hvar er beilísið? Hvar er sjampeinið?
Bættu toffí í æriskoffíið!
Hvernig smakkast svo? – Þetta er unaðslegt!
Jahá, en mest er þó gaman – aa-ha
Að við skulum vera saman – a-ha


Autor(es): Barry Gibb, Bragi Valdimar Skulason, Guomundur Palsson